Til að ná þessum markmiðum hefur Nordplus Voksen áætlunin stutt við fjölbreytt samvinnuverkefni og mannaskipti á milli stofnana sem starfa að fullorðinsfræðslu á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum. Nordplus Voksen styður samvinnu stofnana og félaga frá þátttökulöndum, sem miðar að því að þau læri hvert af öðru og greini þarfir og áskorarnir. Nordplus Voksen styður þróun í nýsköpun og gæðamálum á sviði fullorðinsfræðslu.
_____________________________________________________
Næsti umsóknarfrestur í öllum liðum Nordplus (Junior, Háskólastig, Voksen, Horisontal og Nordiske Sprog) er 1. mars 2013.
Umsóknum skal skila rafrænt í gegnum umsóknakerfið Espresso á slóðinni:
Leiðbeiningar fyrir ESPRESSO væntalegar um miðjan janúar 2013
_____________________________________________________
BREYTINGAR varðandi lokaskýrslur í Nordplus Voksen
ARS kerfið sem hefur verið notað undanfarin ár er að loka og því skal EKKI senda lokaskýrslur þar inn.
Nýja kerfið, Expresso, verður að öllum líkindum opnað 14. janúar 2013 og verður hægt að skila skýrslum þar inn.
Nánari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur á aðalsíðu nordplus: www.nordplusonline.org
Handbók um Nordplus (á ensku) (.pdf, 470 kb)
Tengiliðir fyrir Nordplus Voksen hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins eru:
Ragnhildur Zöega, 525 5813, rz(hjá)hi.is
Karítas Kvaran, sími 525 4304, karitask(hjá)hi.is
Aðalsíða Rammaáætlunar Nordplus er: www.nordplusonline.org