Umsóknarfrestur í öllum liðum Nordplus (Junior, Háskólastig, Voksen, Horisontal og Nordiske Sprog- og Kulturprogram) er 1. febrúar 2013
Öllum umsóknum verður að skila rafrænt í gegnum umsóknarkerfið ARS á slóðinni: http://ars.norden.org.
Leiðbeiningar um ARS:
ARS User Guide (.pdf, 11 mb)
Viðhengi með umsókn: Nordplus Model Budget (.xls, 273 k) - mjög æskilegt að umsækjandi noti þetta form fyrir fjárhagsáætlun. Leiðbeiningar eru í skjalinu sjálfu.
Nánari útskýringar fyrir háskólastig (á ensku) (.pdf, 39 kb)
Stofnanir/samtök sem eru stjórna verkefninu eða netinu (coordinators) eiga að sækja um (þegar um skipti (mobility) er að ræða á stofnunin sem sendir einstaklingana að sækja um). Samstarfsaðilar verða að skrifa undir samning (declaration of intent) þess efnis að þeir samþykki þátttöku sína í netinu/verkefninu. Samningurinn á að vera undirritaður af réttum aðila, það er þeim sem stjórna viðkomandi stofnun eða samtökum. Þegar umsóknin hefur verið send rafrænt fá umsækjendur aðgang að prentvænu formi sem á að prenta út, skrifa undir, skanna inn og setja inn sem viðhengi í umsóknarkerfi eða senda sem venjulegan póst til CIMO.
Hægt er að fylla út umsóknareyðublöðin á dönsku, norsku, sænsku eða ensku. Þær umsóknir sem eru með þátttakendur frá Eystrarsaltslöndunum eiga að vera á ensku.
Aðeins er hægt að sækja um þau verk (activities) sem á eftir að framkvæma. Umsóknir sem eru sendar rafrænt eru aðeins teknar til greina.
Nánari upplýsingar eru hér (á ensku)
Hvað er góð umsókn? (.ppt, 1 mb)
Handbók um Nordplus (á ensku) (.pdf, 470 kb)
Tengiliðir fyrir Nordplus fyrir háskólastigið hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins eru:
Óskar E. Óskarsson, 525 5852, oeo(hjá)hi.is
og
Karítas Kvaran, 525 4304, karitask(hjá)hi.is
Áslaug Jónsdóttir, 525 4997, aslaugj@hi.is
Aðalsíða Rammaáætlunar Nordplus er: www.nordplusonline.org