Markmið

Meginmarkmið Norrænu tungumálaráætlunar Nordplus á árunum 2012-2016 eru:

  • Styður verkefni sem auka skilning og þekkingu á norrænum tungumálum (einkum dönsku, norsku og sænsku), með sérstaka áherslu á börn og ungmenni.  
  • Styrkir þróun námsefnis, kennsluaðferða og áætlana sem miða að þekkingu á norrænum tungumálum á öllum menntastigum.

 

_____________________________________________________________________

Oplysninger på nordiske sprog

_____________________________________________________________________

 

Hvernig verkefni eru styrkt?

Hægt er að sækja um margvísleg verkefni sem tengjast norrænum tungumálum (svo sem námsefni, leiki, rannsóknir, fræðsla, ráðstefnur o.fl). Einnig er hægt að sækja um styrki til að stofna samstarfsnet á sviði norrænna tungumála. ATH. að styrkir til bekkjaheimsókna sem áður tilheyrðu Nordplus Sprog hafa nú verið fluttir yfir til Nordplus Junior.

Allir þeir sem starfa að norrænum tungumálum, svo sem skólar, félagasamtök, rannsóknastofnanir og einkafyrirtæki geta sótt um. En gerð er krafa um samstarf á milli a.m.k. þriggja samstarfslanda á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum. (ef þú ert með áhugaverða hugmynd en vantar samstarfsaðila í öðrum löndum, vinsamlegast hafðu samband við Landsskrifstofu Nordplus á Íslandi sem getur aðstoðað þig í leit að samstarfsaðilum).

Nordplus tungumálaáætlunin er opin þátttakendum á Norðurlöndum og Eystrarsaltslöndum. Ath. þó að verkefnin geta einungis fjallað um Norræn tungumál.

Umsóknir skulu vera skrifaðar á dönsku, sænsku eða norsku.

nánari leiðbeiningar um þátttöku, skilyrði, tegund verkefna og fleira má finna í Handbók Nordplus

 

_____________________________________________________________________

 

 

Hvernig og hvenær er sótt um?

 

Nokkrar algengar spurningar um umsóknir í Nordplus

 

Ath. að nýtt umsóknarkerfi, Espresso, var tekið í notkun um miðjan Janúar. Öllum umsóknum skal skilað í það kerfi. Umsóknarfrestur er 1. mars 2013

Hámarksfjárupphæð styrka í Nordplus Sprog er um 75.000 evrur (í einstaka tilvikum hærra). Athugið að sýna þarf fram á mótframlag upp á 50% heildarkostnaðar verkefnis. Mótframlag getur verið í formi vinnustunda, en EKKI er hægt að sækja um laun sem hlut styrksfé.

_____________________________________________________________________

 

 

Upplýsingar

Nánari upplýsingar fást hjá Rannís.  Verkefnisstjóri fyrir Nordplus tungumálaáætlunina er:

Sigrún Ólafsdóttir, sími 525 5855, sigrunol(hjá)hi.is
 

Upplýsingar á dönsku er að finna á aðalsíðu Nordplus: www.nordplusonline.org/sca/sprog_kultur