Próf
TOEFL - Test of English as a Foreign Language.
Öll skráning í Toefl prófin fer fram beint í gegnum skráningarsíðuna þeirra, http://www.ets.org/toefl. Skrá þarf sig minnst 7 dögum fyrir áætlaðan prófdag í "internet based" próf, Toefl IBT. IBT prófið kostar 215$ (des. 2012). Hér er að finna æfingapróf. Athugið að til þess að geta tekið prófið þarf að skrá sig hægra megin á síðinnu en það kostar ekki neitt.
Internet based prófin, Toefl IBT, eru haldin í PROMENNT, Skeifunni 11b. Ekki er lengur boðið upp á skrifleg próf hér á landi, a.m.k. ekki sem stendur.
Þeir sem vilja biðja um lengri próftíma, t.d. vegna lesblindu eða þurfa sérstakt aðgengi vegna fötlunar, þurfa yfirleitt lengri umsóknarfrest sjá "Test takers with disabilities" inn á upplýsingasíðu Toefl.
Upplýsingastofa um nám erlendis lánar út kennslugögn fyrir prófið. Borga þarf tryggingagjald þegar bók er tekin að láni (5000 kr), sem fæst endurgreitt þegar bók er skilað. Eingöngu er hægt að borga í peningum.
GRE - Graduate records examination.
Próf, ætlað fyrir þá sem ætla í framhaldsnám (graduate) í Bandaríkjunum. Flestir þurfa að taka Gre general test. Háskóli Íslands sér um framkvæmd þess prófs. Það er haldið í Reykjavík u.þ.b. tvisvar á ári. Upplýsingastofa lánar út kennslugögn fyrir prófið.
GMAT- Graduate Management Admissions Test.
Hægt er að taka Gmat prófið hjá Tölvu- og verkfræðiþjónustinni. Prófin eru haldin eftir þörfum en æskilegt að menn skrái sig í próf á föstudögum. Hægt verður að prófa tvo í senn þannig að ef aðsókn er mikil getur þurft að dreifa fólki á daga. Allar nánari upplýsingar má fá með því að hringja í Tölvu- og verkfræðiþjónustuna í síma 520 9000 eða með því að tengjast vefsíðu GMAT prófanna. Upplýsingastofa lánar út kennslugögn fyrir prófið.
TestDaF - Test für Deutsch als Fremdsprache.
Alþjóðlegt þýskupróf, fyrir þá sem ætla í háskólanám til Þýskalands. TestDaF prófið er að öllu jöfnu haldið tvisvar á ári hjá Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands, í apríl og í nóvember. Nánari upplýsingar veitir: Tungumálamiðstöð HÍ. Nýja Garði: 525 4593, ems(hjá)hi.is og TestDaf-Institut
Upplýsingastofa um nám erlendis lánar út kennslugögn (bók og tölvudiskur) fyrir TestDaF prófið gegn tryggingagjaldi, 2.500 kr. sem fæst endurgreitt þegar bók er skilað.
SAT prófið og ACT
SAT er inntökupróf fyrir þá sem vilja fara í grunnnám til Bandaríkjanna, þ.e. fjögurra ára nám til Bachelor gráðu. Prófað er í stærðfræði og ensku - rökfræði og gagnrýn hugsun könnuð. Verzlunarskóli Íslands heldur SAT prófin á Íslandi. Næsta próf er 4. maí 2013 (hafið samband við Versló til að fá það staðfest að prófið verði haldið). Skráning fer eingöngu fram á vef SAT með 4 vikna fyrirvara. Verð um 78 USD.
ACT er annað inntökupróf í grunnháskólanám í Bandaríkjunum. Það er þekkingarpróf í námsefni "high school" í Bandaríkjunum og prófað er í stærðfræði, líffræði, eðlisfræði og ensku. Oftast er hægt að taka ACT prófið í stað SAT. Skráning í prófin fer eingöngu fram á vef ACT með 5 vikna fyrirvara. Verð 60-80 USD. Prófið fer fram hjá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði og hjá Kvennaskólanum. Næstu próf eru í Kvennó þann 8. des 2012 og í Flensborg þann 9. febrúar 2013.
DELE - spænskupróf í Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík
Alþjóðlegu spænskuprófin DELE eru haldin tvisvar á ári hér á landi, í maí og í nóvember. Prófin eru haldin á vegum Menningarmálastofnunar Spánar (Instituto Cervantes) og farið er yfir prófin á Spáni. Tungumálamiðstöð HÍ hefur umsjón með maíprófunum og Háskólinn í Reykjavík með nóvemberprófunum.
Boðið er upp á 3 mismunandi próf: Nivel inicial, Nivel intermedio og Nivel superior. Nivel inicial miðast við 2 ára nám í framhaldsskóla, Nivel intermedio er ætlað þeim sem hafa lokið áföngum 600 eða 700 í framhaldsskóla og dvalið í spænskumælandi landi. Nivel superior krefst mjög góðrar spænskukunnáttu, B.A. eða samsvarandi prófs og þekkingar á menningu Spánar. Nánari upplýsingar í Tungumálamiðstöð HÍ eða hjá Instituto Cervantes.
DELF og DALF
Alþjóðleg frönskupróf, ætluð þeim sem stefna á háskólanám í Frakklandi. Prófin eru tekin hjá Alliance française.
IELTS
Enskupróf; ekki er hægt að taka þetta próf hér á landi, sjá hér prófastöðvar erlendis. Flestir breskir háskólar viðurkenna TOEFL prófið þegar sótt er um skóla, en fara fram á að umsækjendur taki IELTS eða önnur tungumálapróf við skólann þegar á staðinn ef komið.