Nordplus junior

Styrkir til samstarfs á leik- grunn- og framhaldsskólastigi

Markmið og áherslur 2012-16:

  • að styrkja samvinnu leik-, grunn- og framhaldsskóla gegnum skólaheimsóknir, samstarfsverkefni og samstarfsnet
  • stuðla að gæðum, nýsköpun og hugviti í menntun
  • jafnrétti til náms og menntun fyrir alla
  • styrkja norræn mál og auka þekkingu og skilning á norrænum málum, menningu, skólalífi og lífháttum
  • auka þekkingu á tungumálum og menningu Eystrarsaltslanda
  • auka samvinnu á milli skóla (einnig leikskóla) og atvinnulífs

 


Nordplus auglýsir eftir styrksumsóknum árið 2013. Umsóknarfrestur er 1. mars 2013

Auglýsingin í heild sinni (.pdf)

Lesið kaflann í handbókinni um Nordplus Junior vandlega áður en þið sækið um; handbókin er aðgengileg á heimasíðu Nordplus.

Ath. að nýtt rafrænt umsóknarkerfi, Espresso, hefur verið tekið í notkun. Einungis er tekið á móti umsóknum í gegnum þetta kerfi. Umsækjendur verða að nýskrá sig til þess að geta skrifað umsókn.

Leiðbeininger um notkun Espresso er að finna í þessu skjali:

  Espresso-manual_NP-JR.pdf (.pdf 2793 K) Sækja skjal

Leit að samstarfsaðila

Helsti vettvangur til þess að finna samstarfsaðila er tölvutorg á aðalsíðu Nordplus.

Þar er bæði hægt að auglýsa eftir samstarfsaðilum jafnframt því að skoða auglýsingar annarra.


BREYTINGAR varðandi lokaskýrslur í Nordplus

Fyrir þá sem eru með ókláruð verkefni (frá 2009-2012) og sóttu um í ARS kerfinu munu ekki geta skilað lokaskýrslum í ARS, því að kerfinu hefur verið lokað. 

Haft verður samband við umsækjandur með upplýsingar um hvernig lokaskýrslum skal skilað


 

Tengiliðir fyrir Nordplus Junior á Íslandi eru:

Guðmundur I. Markússon, 525 5854, gim(hjá)hi.is

Rannsóknamiðstöð Íslands - Rannís, Tæknigarði, jarðhæð, Dunhaga 5, 107 Reykjavík