Menntamálaráðuneytið hefur falið Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins umsjón með ýmsum verkefnum sem tengjast menntasamstarfi á evrópskum vettvangi.
Alþjóðaskrifstofan er hluti af Landskrifstofu Menntaáætlunar Evrópusambandsins, en áætlunin styður við menntun á öllum skólastigum með það að markmiði að Evrópusambandið verði eitt helsta þekkingarsamfélag heims.
Alþjóðaskrifstofan veitir upplýsingar um Þróunarsjóð EFTA og þá möguleika sem íslenskar menntastofnanir hafa innan hans. Sjóðurinn hefur það að markmiði að jafna félagslegan og efnahagslegan mun í Evrópulöndunum og auka samvinnu milli þeirra.
Alþjóðaskrifstofan sér um framkvæmd aðildar Íslands að Tungumálamiðstöðinni í Graz, svo sem kynningu og vinnu við að senda þátttakendur á vinnustofur erlendis.
Alþjóðaskrifstofan hefur umsjón með Evrópumerkinu, sem er viðurkenning fyrir nýbreytniverkefni á sviði tungumálanáms og –kennslu.
Alþjóðaskrifstofan heldur utan um framkvæmd Bologna verkefnisins á Íslandi, sem er ætlað að aðstoða Evrópulönd við að ná settum markmiðum í Bolognaferlinu. Megintilgangur Bolognaferlisins er að mynda samevrópskt háskólasvæði þar sem hreyfanleiki nemenda og háskólafólks er auðveldaður.
Alþjóðaskrifstofan miðlar upplýsingum um Erasmus Mundus áætlunina, sem er ætlað að bæta gæði háskólanáms í Evrópu og efla tengsl við lönd utan Evrópu.