Nordplus Horisontal

Styrkir til samvinnu sem tengir saman aðrar undiráætlanir Nordplus og / eða tengir saman ólíka menntageira. Nordplus Horizontal er opið öllum þeim sem vinna að þróun og nýsköpun menntamála, hvort sem það eru opinberir aðilar, félagasamtök, skólar eða einkageirinn. Gerð er krafa um samstarf á milli lágmarks 3 þátttökulanda innan Norðurlanda og Eystrarsaltslanda. Einnig er gerð krafa um samstarf á milli lágmarks tveggja skólastiga (t.d. á milli háskóla og leikskóla). Hafið samband við landskrifstofu Nordplus á Íslandi fyrir frekari útskýringar á áætluninni.

 

Nordplus Horisontal á að stuðla að samvinnu á milli sviða menntageirans, óháð kennslugreinum, sem fjallar t.d. um samvinnu og tengsl milli grunn- og framhaldsskóla, fullorðinsfræðslu, háskólamenntunar, rannsókna, fyrirtækja og félagasamtaka.

 

Megináherslur Nordplus Horizontal:

  • Styrkir samstarfsverkefni og samstarfsnet sem stuðla að samvinnu á milli sviða menntageirans (til að mynda á milli háskóla og grunnskóla).
  • Stuðlar að auknu samstarfi við aðila utan hefðbundinna menntastofnana, bæði opinberra stofnana og einkaaðila.

Nánar um Horizontal á nordplusonline.org/eng/horizontal

Upplýsingar

Tengiliðir fyrir Nordplus Horizontal hjá Rannís er:
Sigrún Ólafsdóttir, 525 5855, sigrunol(hjá)hi.is

Aðalsíða Nordplus er: www.nordplusonline.org