Grunnnám
Með grunnnámi er átt við byrjunarnám á háskólastigi, þ.e. nám til bachelor gráðu eða diploma gráðu á grunnstigi (diploma próf er yfirleitt eins til tveggja ára nám). Bachelor gráða tekur yfirleitt 3 ár í Evrópu, en fjögur ár í Bandaríkjunum og þrjú til fjögur ár í Kanada. Umsóknarfrestir eru misjafnir í grunnnám. Á Norðurlöndunum eru frestirnir yfirleitt í mars/apríl, í Bretlandi er aðalumsóknarfresturinn 15. janúar. Oftast er eingöngu umsóknarfrestur einu sinni á ári, en þó eru undantekningar frá því t.d. við sænska og þýska háskóla. Best er að byrja u.þ.b. ári áður en nám á að hefjast að afla upplýsinga, leita að skólum sem passa, hafa samband við skólana, athuga aðgangskröfur, hvort þurfi að taka einhver próf og athuga kostnað við námið.
Aðgangskrafan í grunnnám við erlenda háskóla er oftast stúdentspróf, en auk þess getur þurft lágmarkseiningar í einstökum fögum. Þess vegna getur val á námsbraut í framhaldsskóla skipt miklu máli. T.d er algengt að þeir sem ætla í verkfræði, læknisfræði og önnur fög á Norðurlöndum vanti einingar í stærðfræði, raunvísindum, (eðlis, efnafræði, líffræði) og stundum ensku. Einnig er mikilvægt fyrir þá sem hyggjast fara í listnám erlendis, að taka einhver grunnnámskeið í listfögum á framhaldsskólastigi eða önnur listnámskeið.
Oft þarf að taka tungumálapróf til þess að komast inn í erlenda háskóla. Inn í þýska og austurríska háskóla þarf nánast skilyrðislaust að taka þýskupróf (ef námið er kennt á þýsku) og ef maður stenst það ekki, þarf oft að byrja á að læra þýsku eina önn t.d. Algengustu tungumálaprófin eru TOEFL (bandarískt enskupróf), IELTS (breskt enskupróf), TestDaf (þýskupróf) og Delf og Dalf frönskuprófin. Það kostar þó nokkuð að taka þessi próf og borgar sig að undirbúa sig vel fyrir þau. Sjá umfjöllun um þessi próf og hvar og hvenær er hægt að taka þau, undir "Próf" hérna á síðunni.
Önnur inntökupróf eru t.d. inn í listaháskóla. Hvort sem hugmyndin er að leggja fyrir sig myndlist, hönnun, arkitektúr, tónlistarnám eða aðra list, þarf yfirleitt alltaf að taka inntökupróf og/eða senda til skólanna verk sín í möppu. Þegar sótt er um í grunnnám til Bandaríkjanna (undergraduate nám) þarf ennfremur oft að taka Sat prófið. Hins vegar fær fólk oft metið eitt ár og jafnvel meira af íslensku stúdentsprófi þegar sótt er um grunnnám í bandaríska háskóla. Ef sótt er strax um sem "transfer" stúdent er hugsanlegt að viðkomandi sleppi við að taka Sat prófið.
Til að leita að námi: Nám á eigin vegum