Fylgigögn með umsókn
Hér er listi yfir gögn sem algengt er að fylgja eigi með umsóknum. Þau eiga ekki öll við í öllum tilfellum og það á að koma fram í upplýsingum um umsóknir á heimasíðum skólanna eða í sjálfri umsókninni hvaða gögn eiga að fylgja. Í sumum tilfellum er það einungis prófskírteini, en beðið um aðrar upplýsingar, t.d. um nám og störf, í umsókninni sjálfri.
Prófskírteini
Nánast alltaf þegar sótt er um nám þarf að fylgja með umsókn staðfest afrit af prófskírteini. Oftast nægir að hafa það á ensku. Einstaka lönd biðja þó um að prófskírteini sé sent á móðurmáli t.d. er það algengt með sænska háskóla. Til að fá prófskírteini á ensku og/eða íslensku er best að fara á skrifstofu þess skóla (framhaldsskóla, háskóla) sem prófið var tekið við. Athuga að biðja um staðfest afrit, stimplað og undirritað. Ef sótt er um fleiri en einn skóla, þarf staðfest afrit fyrir hvern skóla, sem sótt er um.
Ef þarf að láta þýða prófskírteini yfir á annað tungumál, þarf til þess löggiltan skjalaþýðanda, sjá Félag löggiltra dómtúlka og skjalaþýðenda
Ferilskrá
Ferilskrá er oft mikilvægt fylgiskjal með umsókn í nám og starf. Í mörgum tilfellum eiga samsvarandi upplýsingar þó að fara beint inn í umsókn. Ýmsar gerðir eru til af ferilskrám, en almennt eru þær hámark ein til tvær blaðsíður að lengd og eru upptalning á námsferli, starfsferli og annarri kunnáttu s.s. tungumálakunnáttu, tölvukunnáttu eða öðru. Europass ferilskráin er hentungt tæki þar eð hún er eins á 26 tungumálum þannig að þegar búið er að gera hana á einu þeirra er auðvelt að þýða hana yfir á hin.
Kynningarbréf - Motivation letter, statement of purpose, admissions essay
Það er mjög algengt þegar sótt er um nám erlendis að svokallað kynningarbréf (stundum kallað hvatabréf) eigi að fylgja með umsókninni. Eðlilegast er að þetta bréf sé skrifað á því tungumáli sem ætlunin er að læra á. Þ.e. ef fyrirhugað nám er kennt á ensku er sjálfsagt að hafa bréfið á ensku, ef námið er á þýsku skal bréfið vera á þýsku o.s.frv. Ef vafi leikur á, á hvaða tungumáli þetta bréf skuli vera skal spyrja skólann sem verið er að sækja um í.
Algengt er að þetta bréf sé u.þ.b. ein til tvær blaðsíður og þar segi maður frá sjálfum sér og sínu áhugasviði og þá ekki síst hvers vegna þú vilt fara í þetta tiltekna nám og í þetta tiltekna land og þess háttar. Það er mjög einstaklingsbundið hvernig þetta bréf er. Sumir skólar vilja hafa það á ákveðnu formi og í tiltekinni lengd. Þess vegna er mikilvægt að skoða heimasíður hvers skóla fyrir sig um hvernig þessu skuli háttað. Hægt er að finna ýmsar leiðbeiningar á internetinu um það hvernig skrifa skuli kynningarbréf um sig vegna umsókna í háskóla eða aðra skóla. Ef gúglað er "motivation letter" eða "statement of purpose" koma upp gagnlegar síður um þetta.
Meðmæli
Oft er til bóta og stundum nauðsynlegt að senda meðmæli með umsókn, einkanlega ef verið er að sækja um framhaldsnám (meistaranám eða doktorsnám). Algengt er að send séu tvenn meðmæli, ein akademísk þ.e. frá kennara og ein frá vinnuveitanda. Þetta fer þó eftir eðli námsins sem sótt er um, stundum á við að senda tvenn meðmæli frá kennara. Margir skólar vilja að meðmæli séu send beint frá meðmælandanum.