Hér eru svör við nokkrum algengum spurningum varðandi umsóknir í Nordplus áætlunina

  • Nánari upplýsingar um Nordplus, einstaka áætlanir, reglur og umsóknaferli má finna í handbók Nordplus

 

Hvar sæki ég um?

  • Allar umsóknir fyrir Nordplus eru unnar í nýja Espresso umsóknarkerfinu. Ath. að gamla umsóknarkerfinu ARS verður lokað 1. janúar 2013. Nauðsynlegt er að nýskrá sig til að geta hafið umsókn.


Hvenær er umsóknarfrestur?

  • Umsóknarfrestur í Nordplus er 1. febrúar ár hvert. (undantekning er árið 2013 þegar umsóknarfrestur er 1. mars)
  • Aukaumsóknafrestur fyrir undirbúningsheimsóknir er 15. október ár hvert. Undirbúningsheimsóknir eiga einungis við í Nordplus Junior og Nordplus Voksen.

 

Hvað þarf ég marga samstarfsaðila í verkefni?

  • Að öllu jafnaði þurfa samstarfsaðilar frá þremur löndum að taka þátt í verkefni Nordplus. Samstarfsaðilar verða að vera virkir þátttakendur í verkefninu sem hafa ákveðnu hlutverki að gegna(ekki nægir að minnst sé á nöfn þeirra í umsókn)
  • Þegar um námsheimsóknir (í Junior og Voksen) er að ræða nægir samstarf skóla / stofnana í tveimur löndum.

Á hvaða tungumáli þarf umsóknin að vera?

  • Hægt er að skrifa umsóknir á ensku og norðurlandatungumálum (dönsku, norsku og sænsku).
  • Ekki er hægt að skrifa umsóknir á íslensku.
  • Ef samstarfsaðili í verkefninu kemur frá Eystrasaltslöndunum, verður umsóknin að vera skrifuð á ensku.
  • Umsóknir í Nordplus Sprog verða að vera á dönsku, norsku eða sænsku.

 Hvað einkennir góða umsókn?

  • Góður undirbúningur – þróa hugmynd og finna samstarfsaðila fyrirfram.
  • Skýr hugmynd – er auðvelt fyrir utanaðkomandi að skilja verkefnið?
  • Árleg áhersluatriði – skírskotun til eins eða fleiri árhersluatriða áætlunarinnar.
  • Samstarfsaðilar – hvers vegna? Skýr hlutverkaskipting og ábyrgð.
  • Markhópur – fyrir hverja er verkefnið? Hvert er samhengið?
  • Dreifing niðurstaðna – Hvernig? Ná niðurstöður til annarra en aðstandenda?
  • Sjálfsmat – Hvernig á að meta árangur verkefnisins?

Hversu háir eru Nordplus styrkir?

  • Styrksupphæðir eru mjög misjafnar og velta á umfangi verkefnis. Algeng styrksupphæð er á bilinu 5.000-30.000 evrur. Hæstu styrkirnir sem veittir eru til einstakra stærri verkefna, eru um 75.000 evrur. Hafið samband við Landskrifstofu Nordplus ef þið eruð í vafa um hversu háa styrksupphæð þið getið sótt um.  
  • Hægt er að sækja um styrk allt að 50% af heildarfjárhagsáætlun verkefnis. Nauðsynlegt er að gera grein fyrir mótframlagi upp á 50%,
  • Fyrir bekkjaheimsóknir og undirbúningsheimsóknir kennara (Junior og Voksen) er hægt að sækja um 100% styrk. Fyrir bekkjarheimsóknir er miðað við að hámarksfjöldi nemenda í hverri ferð er 30 (frá hvoru landi). Espresso umsóknarkerfið reiknar út upphæð styrks eftir föstum ferðaviðmiðum (misjafnt á milli landa).
  • Verkefni (ekki heimsóknir) í  Nordplus Voksen og Junior geta sótt um allt að 75% af heildarupphæð verkefnis.

Fyrir hverju er veittur styrkur?

  • Ferðastyrk í Nordplus Junior og Voksen er ætlað að dekka allan kostnað við ferðir, uppihald (mat, gistingu, safnaferðir) og dagpening kennara. Ekki er farið fram á mótframlag skóla. (ath. þó að hámark 30 nemendur frá hvoru landi geta fengið styrk, sé hópur sem ferðast stærri en það gæti aukakostnaður fallið á skóla / nemendur)
  • Í verkefnum þarf umsækjandi að sýna fram á mótframlag upp á 50% heildarkostnaðar verkefnis. Mótframlagið getur verið í formi vinnustunda (og athugið að EKKI er hægt að sækja um laun sem hlut af styrksfé). Dæmi um styrkta kostnaðarliði eru námskeið, húsnæði, auglýsingar, ferðir, útgefið efni o.fl.

Hvernig geri ég fjárhagsáætlun (á ekki við um ferðalög í Junior og Voksen)?

  • Í Espresso umsóknakerfinu er beðið um að setja inn kostnað fyrir alla hluta verkefnisins (í þar til gerðum fjárhagsreit). Sýna þarf með skýrum hætti hvernig kostnaður skiptist upp og einnig hvernig mótframlagið er dekkað.
  • Auk þess er óskað eftir að skýr kostnaðaráætlun sé sett sem viðhengi inn í kerfið -- ath. á ekki við námsheimsóknir og undirbúningsheimsóknir (mobility). Sniðmát fyrir fjárhagsáætlun má finna hérna: sniðmát fjárhagsáætlun