Umsóknarfrestir geta verið breytilegir á milli háskóla og jafnvel á milli Nordplus samstarfsneta.
Algengur umsóknarfrestur fyrir stúdenta er 1 mars.
Nánri upplýsingar ætti að vera hægt að nálgast á heimasíðu heimaskóla eða með því að hafa samband við alþjóðafulltrúa heimaskóla.
NORDPLUS er norræn hliðstæða ERASMUS-áætlunarinnar. Hún miðar að því að Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin verði einn menntunarmarkaður. Í því felst að stúdentum er gert kleift að stunda hluta af námi sínu við annan háskóla í þessum löndum og fá námið metið til eininga heima fyrir.
Fyrir Íslendinga felur þetta í sér möguleika á námsdvöl í Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Lettlandi, Litháen, Noregi og Svíþjóð í eitt til tvö misseri. NORDPLUS-stúdentar gera námsáætlun áður en haldið er út og fá námið metið sem eðlilegan hluta af námi sínu hér. Til þess að mæta þeim kostnaði sem felst í því að skipta um skóla veitir NORDPLUS sérstaka ferða- og dvalarstyrki.
Í því skyni að auðvelda stúdentaskipti á vegum Nordplus eru veittir styrkir til að mæta ferða- og viðbótarkostnaði sem nemendur verða fyrir vegna námsdvalarinnar erlendis. Athygli er vakin á því að Nordplus er ekki einungis ætlað að greiða götu þeirra sem hljóta styrki, stúdentar geta einnig notið góðs af skipulögðu samstarfi norænna háskóla og farið utan sem Nordplus-skiptinemar án styrks.
Upphæð styrkja getur verið breytilega milli neta en yfirleitt gildir:
Styrkirnir skerða ekki námslán frá LÍN.
Ráðlegt er að hefja undirbúning að umsókn u.þ.b. þremur mánuðum áður en umsóknarfrestur rennur út. Upplýsingastofa um nám erlendis heldur reglulega kynningarfundi fyrir verðandi skiptistúdenta .
Á heimasíðu hvers háskóla er yfirleitt hægt að nálgast lista yfir samstarfsskóla.
Athugið að umsókn er ekki gild nema forsvarsmaður námsgreinar samþykki hana.
Umsóknum skal skila til Alþjóðaskrifstofu heimaskóla - algengur umsóknarfrestur er 1. mars.