Er námið "viðurkennt" hér á landi?
Þetta er spurning sem oft vaknar þegar verið er að velja skóla erlendis. Fólk sem ætlar að læra erlendis vill skiljanlega vera öruggt um að það geti notað námið hér á landi. Þegar við fáum þessa spurningu er yfirleitt eitt af þrennu sem vakir fyrir spyrjendunum:
Í fyrsta lagi hvort starfsheitið sem námið erlendis veitir sé viðurkennt hér á landi, þ.e.a.s. hvort námið veiti réttindi til að starfa til jafns á við þá sem stundað hafa námið hér á landi. Hvort fagfélag samþykki námið og hvort viðkomandi ráðuneyti veiti starfsréttindi og á það við í þeim tilvikum sem um lögvernduð starfsheiti er að ræða.
Ef starfsheiti er lögverndað þarf starfsleyfi frá ráðuneyti. T.d. þarf starfsleyfi frá Velferðarráðuneyti til að starfa sem dýralæknir, tannlæknir, hjúkrunarfræðingur o.s.frv. og frá Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti til að starfa sem verkfræðingur, bifvélavirki eða innanhússhönnuður svo eitthvað sé nefnt. Af síðu Europass er að finna yfirlit yfir lögvernduð starfsheiti á Íslandi (velja "Lögbundin störf á Íslandi"). Þeir sem ætla í þess háttar nám, ættu að hafa samband við viðkomandi fagfélag til að ganga úr skugga um hvort námið veiti starfsréttindi. T.d. Verkfræðingafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands, Dýralæknafélag Íslands og fleiri.
Í öðru lagi snýst spurningin um hvort Lánasjóður íslenskra námsmanna viðurkenni námið sem lánshæft nám. Nám er yfirleitt lánshæft hjá Lánasjóðnum ef það er á háskólastigi eða er sérnám, sem veitir starfsréttindi. Sjá kynningu á reglum sjóðsins á síðu Lánasjóðsins. Þar er enn fremur hægt að finna allt nám sem lánað hefur verið í undanfarin tvö ár.
Í þriðja lagi snýst spurningin um hvort námsgráðan sem tekin er erlendis, sé viðurkennd hér til áframhaldandi náms við íslenska menntastofnun. T.d. ef tekin er bachelor gráða í viðskiptafræði í Bretlandi, hvort hún veiti aðgang að meistaranámi í viðskiptafræðum hérlendis. Í þeim tilvikum þarf að hafa samband við viðkomandi menntastofnun. Listi yfir skóla á háskólastigi hér á landi.
Mat á námi
Ef meta þarf nám á milli landa er hægt að hafa samband við Enic Naric skrifstofu í fyrirhuguðu námslandi.