Framhaldsnám
Með framhaldsnámi er átt við háskólanám eftir grunnnám, þ.e. nám á mastersstigi eða dotorsstigi. Fyrir ekki svo mörgum árum, var lítið hægt að fara í framhalds háskólanám á Íslandi og þá fóru nánast allir sem vildu bæta við sig framhaldsmenntun, utan til náms. En framboð á framhaldsnámi hér á landi hefur aukist mikið síðustu árin. Engu að síður kjósa margir að taka prófgráður erlendis og sumt nám er eingöngu hægt að stunda erlendis, t.d. dýralækningar, master í arkitektúr o.fl.
Aðgangskröfur í framhaldsnám eru yfirleitt bachelor gráða í viðkomandi fagi. í Bretlandi kallast framhaldsnámið "Postgraduate", en í Bandaríkjunum kallast það "Graduate" nám. Á Norðurlöndunum heitir það yfirleitt "kandidatsstudium" eða mastersnám. Í Svíþjóð er kandidatsstudium þó grunnnám. Í sumum löndum Evrópu skiptist námið ekki niður í grunn- og framhaldsnám heldur er 5 - 6 ára nám í einni lotu og þá er tekið lokapróf. Með svokallaðri Bologna áætlun, er stefnan að á öllu evrópska efnahagssvæðinu verði öllu háskólanámi skipt upp í þrjár gráður: bachelorgráða (eftir þriggja ára nám), mastersgráða (eftir tveggja ára nám) og síðan doktorsgráða. Flest Evrópulönd eru búin að taka upp þetta fyrirkomulag og einnig hinar svokölluðu ECTS einingar, þ.e. hvert ár í háskóla er 60 ECTS einingar og tveggja ára framhaldsnám er því 120 einingar. Þó eru ennþá lönd í Evrópu sem hafa ekki tileiknað sér þetta kerfi, til að mynda nota breskir og ítalskir háskólar yfirleitt ekki ECTS einingakerfið.
Helstu próf sem beðið er um eru: Toefl, Ielts, Gre, Gmat, TestDaf, frönskupróf. Sjá hérna á síðunni undir "Próf".
Til að leita að námi erlendis, veljið Nám á eigin vegum.