Meginmarkmið og forgangsatriði Nordplus fullorðinsfræðsluverkefna 2012-2016

  • Leggja rækt við grunnfærni fullorðinna og styrkja mat og viðurkenningu á óformlegri menntun.
  • Styrkja fullorðinsfræðslu í  nútímasamfélagi og áskorunum þess, með sérstaka áherslu á fullorðinsfræðslukennslu og fjölmenningu
  • Styrkja tengsl á milli fullorðinsfræðslu og atvinnulífs

Til að ná þessum markmiðum hefur Nordplus Voksen áætlunin stutt við fjölbreytt  samvinnuverkefni og mannaskipti  á milli stofnana sem starfa að fullorðinsfræðslu á Norðurlöndum og Eystrasaltslöndum.  Nordplus Voksen styður samvinnu stofnana og félaga frá þátttökulöndum, sem miðar að því að þau læri  hvert af öðru og greini þarfir og áskorarnir.  Nordplus Voksen styður þróun í  nýsköpun og gæðamálum á sviði fullorðinsfræðslu.

_____________________________________________________

Hvernig og hvenær er sótt um?

Næsti umsóknarfrestur í öllum liðum Nordplus (Junior, Háskólastig, Voksen, Horisontal og Nordiske Sprog) er 1. mars 2013.

Umsóknum skal skila rafrænt í gegnum umsóknakerfið Espresso á slóðinni:

Leiðbeiningar fyrir ESPRESSO væntalegar um miðjan janúar 2013  
 

_____________________________________________________

 

BREYTINGAR varðandi lokaskýrslur í Nordplus Voksen

ARS kerfið sem hefur verið notað undanfarin ár er að loka og því skal EKKI senda lokaskýrslur þar inn.

Nýja kerfið, Expresso, verður að öllum líkindum opnað 14. janúar 2013 og verður hægt að skila skýrslum þar inn.

Nánari upplýsingar verða birtar þegar nær dregur á aðalsíðu nordplus: www.nordplusonline.org

 

Handbók um Nordplus

Handbók um Nordplus (á ensku) (.pdf, 470 kb)

Upplýsingar

Tengiliðir fyrir Nordplus Voksen hjá Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins eru:

Ragnhildur Zöega, 525 5813, rz(hjá)hi.is

Karítas Kvaran, sími 525 4304, karitask(hjá)hi.is

Aðalsíða Rammaáætlunar Nordplus er: www.nordplusonline.org