Upplýsingastofa um nám erlendis
Hinn fyrsta janúar sl. færðist Upplýsingastofa um nám erlendis frá Háskóla Íslands til Rannís. Upplýsingastofan er til húsa í Tæknigarði Dunhaga 5, beint á móti móttökunni þar. Framvegis er því öllum þeim sem hyggja á nám á eigin vegum utanlands bent á snúa sér þanga. Hægt er að koma og fá aðstoð við leit að námi og við aðra upplýsingaöflun sem við kemur námi erlendis. Opin er virka daga kl. 13-16. Einnig er hægt að hringja í síma 525 4900 eða senda fyrirspurnir í gegnum tölvupóst.
Senda tölvupóst á Dóru Stefánsdóttur dora.stefansdottir@rannis.is
Senda tölvupóst á Margréti Sverrisdóttur margret.sverrisdottir@rannis.is
Senda tölvupost á Ragnhildi Zoega ragnhildur.zoega@rannis.is
Nokkrir flýtitenglar:
Nám á eigin vegum
Skiptinám
Próf (toefl o.fl.)
Handbók um styrki
Fréttir og tilkynningar
Upplýsingafundir um að flytja til hinna Norðurlandanna
Halló Norðurlönd og EURES, Evrópsk vinnumiðlun, standa fyrir upplýsingafundum fyrir þá sem hyggja á flutning til hinna Norðurlandanna. Á fundunum mun fulltrúi EURES gefa góð ráð varðandi atvinnuleit á Norðurlöndum. Starfsmaður Halló Norðurlanda fer yfir hagnýt atriði sem gott er að hafa í huga við flutning auk þess sem fulltrúi alþjóðadeildar Ríkisskattstjóra leiðbeinir varðandi skattamál.
Upplýsingafundirnir verða sem hér segir:
- Mánudaginn 18. mars kl. 18:00: Að flytja til Noregs
- Miðvikudaginn 20. mars kl. 18:00: Að flytja Svíþjóðar
- Miðvikudaginn 20. mars kl. 20:30: Að flytja til Danmerkur
Fundirnir eru haldnir í húsnæði Vinnumálastofnunar, Kringlunni 1 og eru öllum opnir. Þeir henta öllum þeim sem hyggja á vinnu, nám eða búsetu í Danmörku, Noregi eða Svíþjóð. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður og því er nauðsynlegt að skrá sig á námskeiðin. Skráning fer fram hjá Halló Norðurlöndum í síma 511 1808 og 551 0165 og á netfanginu hallo@norden.is.
Nánari upplýsingar um námskeiðin veitir Alma Sigurðardóttir verkefnisstjóri í síma 511 1808.
Læknisfræði í Slóvakíu - inntökupróf
Inntökupróf í Jessenius Faculty of Medicine fyrir skólaárið 2013/2014 verða í júni í Reykjavík . Nánari upplýsingar Runólfur Oddsson , s. 5444333 , kaldasel@islandia.is
Sumarnám í Kína
Nordic Centre við Fudan háskóla heldur sumarnámskeiðið Introduction to Modern China 8-26 júlí 2013. Námskeiðið veitir ECTS-einingar og fæst metið inn í nám við HÍ, ef forsvarsmaður deildar samþykkir námsáætlun. Námskeiðið er fyrir grunnema, ekki er nauðsynlegt að hafa mikla þekkingu á Kína til þess að taka þátt í námskeiðinu.
Námskeiðið skiptist í tvo hluta, Chinese Economy og Chinese Politics og velja þátttakendur annan hvorn. Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu, en þeir þurfa sjálfir að greiða ferðakostnað, húsnæði og uppihald. Umsóknarfrestur er 22. mars 2013. Umsóknarblaði á að skila til Alþjóðaskrifstofu HÍ, Háskólatorgi ásamt yfirliti yfir einkunnir frá
Nemendaskrá og ferilskrá (CV). Hvort tveggja á að vera á ensku.
Frekari upplýsingar um námskeiðið og umsóknareyðublað má finna á
http://www.hi.is/adalvefur/sumarnam. Einnig er hægt að hafa samband við Hörpu Sif á Alþjóðaskrifstofu - hsa@hi.is.
Tilkynning frá Fulbright stofnuninni
Okkur er mikil ánægja að tilkynna að Evrópa, þ.m.t. Ísland, hefur nú aftur fengið aðgang að „Specialist Program“ Fulbright, en áætluninni var lokað tímabundið sl. vor.
Á vegum áætlunarinnar geta íslenskar stofnanir sótt um að fá bandarískan fræðimann til skemmri dvalar (2-6 vikur), t.d. til aðstoðar við þróunarstarf og/eða til kennslu og fyrirlestrahalds. Vinsamlegast athugið að Ísland fær að hámarki þrjá styrki á ári, en tekið er við umsóknum allt árið um kring. Allar frekari upplýsingar má finna á vesíðu okkar, www.fulbright.is.
Minningarsjóður Önnu Claessen laCour styrkir nám í Danmörku
Stofnaður hefur verið Minningarsjóður Önnu Claessen laCour til styrktar íslensku námsfólki sem vill stunda framhaldsnám í Danmörku. Stofnfé sjóðsins er jafnvirði um 40 milljóna ísl. króna og er gert ráð fyrir árlegum styrkveitingum úr honum. Einkum er ætlast til að þeir sem stunda eða hafa stundað nám í Menntaskólanum í Reykjavík njóti styrkjanna, en Anna varð stúdent úr þeim skóla árið 1933 tæpl. 18 ára að aldri.
Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum rennur næst út 1. janúar 2014. Umsóknir ber að stíla til formanns sjóðsstjórnarinnar:
Anna Claessen la Cour Fond
hr. advokat Niels Kahlke formand
Købmagergade 3
1150 København K
D a n m a r k
tlf. 33 12 25 50, fax 33 11 23 31
niels@kahlke.dk - www.kahlke.dk
Inntökupróf í grunnháskólanám til Bandaríkjanna
Inntökupróf fyrir þá sem vilja fara í grunnháskólanám til Bandaríkjanna verða haldin á næstu vikum. ACT prófið fer fram hjá Kvennaskólanum í Reykjavík þann 8. des 2012 og hjá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði þann 9. febrúar 2013. Verzlunarskóli Íslands heldur SAT prófið á Íslandi þann 4. maí 2013. Nánari upplýsingar.
Fjarnám án endurgjalds
Fjarnám frá nokkrum betri háskólum heims, án endurgjalds. Um að gera að kynna sér þetta.
Læknisfræði í Slóvakíu
Comenius háskólinn í Bratislava í Slóvakíu mun bjóða íslenskum stúdentum upp á inntökupróf í læknisfræði. Inntökuprófið verður haldið þann 29. ágúst í Reykjavík. Upplýsingar um skráningu í prófið er að finna á vefsíðu skólans: http://www.jfmed.uniba.sk/index.php?id=1737 Hafa skal samband við ræðismann Slóvakíu hér á landi Hr. Runólf Oddsson varðandi umsókn í inntökuprófið, sjá hérna: http://www.utanrikisraduneyti.is/verkefni/sendi-og-raedisskrifstofur/erlendar/nr/480
LINGO málamiðlun
Lingo málamiðlun er ráðgjafar- og þjónustufyrirtæki sem býður lausnir sem auðvelda einstaklingum og fyrirtækjum að taka þátt í alþjóðasamfélaginu; námskeið á sviði tungumála og menningarlæsis, auk náms á háskólastigi við alþjóðlega fagskóla. Nánari upplýsingar er að finna á síðu LINGO málamiðlun.
KILROY education
Kilroy education er ókeypis ráðgjafarþjónusta fyrir ungt fólk og námsmenn sem vilja mennta sig erlendis. KILROY getur hjálpað þér að sækja um nám erlendis og gefur þér upplýsingar um ýmsa möguleika á háskólum sem henta þér víðsvegar um heiminn. KILROY er í samstarfi við ákveðna háskóla í Kína (Hong Kong), Japan, Singapúr, Ástralíu, Nýja Sjálandi, Englandi, Kanada og Bandaríkjunum.
Frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu KILROY education
MEXT Styrkir til grunn- og framhaldsnáms og iðntæknináms í Japan 2013
Vakin er athygli á að umsóknarfrestur um styrki til háskólanáms í Japan 2013 er 28. júní 2012. Nánari upplýsingar er að finna í Handbók um styrki.
Toelf og Gre prófskráning
Margir hafa átt í erfiðleikum með að skrá sig í þessi próf, einkanlega þegar kemur að því að borga með kreditkorti. Stundum virkar að prófa aðra tölvu eða að nota annað kort (heyrst hefur að Masterkort gangi best). Oft er farið fram á vottunarnúmer á Visa-kortum, þá þarf að hringja í Valitor og fá það númer uppgefið (fjögurra stafa númer). En ef ekki gengur að klára skráninguna í gegnum netið er hægt að hringja á hollenska skráningarskrifstofu í síma 00 31 - 320 239 540 og skrá sig í gegnum símann.
Evróvísir upplýsir um tækifæri ungs fólks
Ef þig langar t.d. að læra hárgreiðslu eða blómaskreytingar í öðru landi, læra nýtt tungumál, fara í sjálfboðavinnu, eða vinna í öðru landi í sumarfríinu þínu þá getur þú haft samband við Evróvísi á Íslandi. Þar getur þú fengið svar við þínum spurningum. Smelltu hér fyrir nánari upplýsingar.