Frá og með 1. janúar 2013 heyrir Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins sögunni til og verkefni hennar flytjast til Alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands og Rannís.

Verkefni tengd Háskóla Íslands (t.d. stúdenta- og starfsmannaskipti) eru hjá Alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands

 
 

Fréttir og tilkynningar

Styrkir til háskólanáms og rannsóknarstarfa í Þýskalandi, umsóknarfrestur framlengdur til 10.11.2011 26.09.2011

Stjórnvöld í Þýskalandi bjóða fram styrki handa Íslendingum til að stunda háskólanám og rannsóknastörf í Þýskalandi skólaárið 2012-2013.  Auk styrkja til háskólanáms og rannsóknastarfa eru veittir styrkir til tungumálanáms, kynnisheimsókna, starfsþjálfunar á ákveðnum sviðum svo og eru veittir sérstakir styrkir til listamanna. Einnig eru í boði styrkir fyrir fyrrverandi DAAD-styrkþega. Nánari upplýsingar er að finna í handbók um styrki.

Til baka...